Þeir sem vilja öðlast réttindi til að aka bifhjóli þurfa að sitja 12 tíma bóklegt námskeið og taka 11 ökutíma. Í
bóklega hlutanum er farið yfir umferðarreglur og hvað ber að varast sérstakleg í akstri bifhjóla. Þá er einnig farið í
umhirðu hjólsins, fatnað og öryggisbúnað og er kennsla að miklu leyti í formi umræðna í hópnum. Kennarar á
námskeiðinu eru Björn V Magnússon ökukennari og Baldvin Ringsted framhaldsskólakennari, bifhjólamaður og Snigill til margra ára.
Ökutímarnir skiptast annars vegar í æfingar á plani og hins vegar í akstur í umferð.
Á planinu er farið í ýmsar jafnvægisæfingar, svig á milli keila, nauðhemlun og fleira.
Í umferðinni er lögð áhersla á öruggan akstur, rétta staðsetningu á akbraut og svokallaðan varnarakstur.
Verð á bifhjólaréttindum er um 80.000.-
Bóklegi hlutinn er 15.000,-