Hefja má nám til aukinna ökuréttinda 6 mánuðum áður en réttindaaldri er náð. Aldursmörk fyrir vörubíl,
eftirvagn og leigubíl eru 21 ár, en fyrir rútu 23 ár. Námið skiptist í grunnnám, framhaldsnám og verklegt nám.
Grunnnám: Umferðarfræði 12 kennslustundir Umferðarsálfræði 12 kennslustundir Skyndihjálp 16 kennslustundir Bíltækni 12 kennslustundir
Fyrir vörubílaréttindi bætast viðgrunnnámið: Stór ökutæki 32 kennslustundir 12 ökutímar Fyrir eftirvagnaréttindi
bætast við vörubílanámið: Eftirvagnar 4 kennslustundir 7 ökutímar Fyrir rútu bætast við grunnnámið: Stór
ökutæki 32 kennslustundir Ferða og farþegafræði 16 kennslustundir 12 ökutímar (8 tímar ef viðbót við vörubíl) Fyrir
farþegaflutninga á 8 farþega bíl og minna (leigubíl) bætist við grunnámið: Ferða og farþegafræði 16 kennslustundir 3
ökutímar Athygli er vakin á því að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína um verulega upphæð í þessu
námi.

