B réttindi:
Námskeið til almennra ökuréttinda eru í gangi allt árið hjá Ökuskólanum á Akureyri. Hægt er að fá
upplýsingar um hvenær þau hefjast á tímatöflunni hér á síðunni. Námið er tvískipt, Ö1 og
Ö2.
Byrjað er á Ö1 og er það grunnnámskeið sem þarf að ljúka áður en æfingaleyfi er gefið út. Þegar
sá tími nálgast að nemandi ætli að ljúka bóklegu prófi kemur hann aftur í ökuskólann og tekur Ö2. Farið er
yfir námsefnið að hluta með aðstoð tölvu og skjávarpa en einnig er mikið um umræður, verkefnavinnu og myndbönd tengd
umferðarmálum.
Í lok námskeiðanna er tekið stöðupróf til að nemandi sjái hvar hann stendur í náminu. Bæði námskeiðin
eru 12 kennslustundir og er kennt á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum frá kl 18.00 til 21.15. Hvort námskeið kostar kr.
12.000.-

