Almennt - föstudagur 04.nóvember 2011 - Björn Magnússon - Lestrar 83 - Athugasemdir (0)
Fimmtudaginn 10 nóvember hefst vinnuvélanámskeið. Kennsla stendur yfir í rúma viku og endar á laugardegi. Kennt er á virkum dögum
frá kl 17.00 til 22.00 og um
helgar er byrjað klukkan níu að morgni. Innifalið í námskeiðsgjaldi er bókleg kennsla og verkleg á gröfu. Tímar fyrir
verklega kennslu eru í samráði við kennara. Við getum einnig bætt við verklegri kennslu á aðrar gerðir tækja eftir óskum hvers og
eins. Nánari upplýsingar eru hér til vinstri á síðunni og í síma 692 3039.

