Lærið þar sem reynslan er mest og kjörin best

Bifhjólanámskeið - bóklegt nám 17 og 18. ágúst 2010 Bifhjólanámskeið - bóklegi hlutinn er kenndur þriðjudaginn 17. ágúst og

Fréttir

Bifhjólanámskeið - bóklegi hlutinn er kenndur þriðjudaginn 17. ágúst og miðvikudaginn 18.ágúst.
Kennsla hefst kl 18:00 báða daganna, kennt er til c.a 22 fyrra kvölið og er seinna kvöldið aðeins styttra.
Í bóklega hlutanum er farið yfir umferðarreglur og hvað ber að varast sérstakleg í akstri bifhjóla.  Þá er einnig farið í umhirðu hjólsins, fatnað og öryggisbúnað og er kennsla að miklu leyti í formi umræðna í hópnum.  Kennarar á námskeiðinu eru Björn V Magnússon ökukennari og Baldvin Ringsted framhaldsskólakennari, bifhjólamaður og Snigill til margra ára.

Bóklegi hlutinn er 15.000,- og er greiddur annað hvort kvöldið sem námið stendur yfir.
Bifhjólanámskeiðið í heild sinni fyrir bóklega hlutann og kennslutíma á hjóli er 85.000,-  m.v lágmarks tímafjölda.  Við þetta bætist prófgjöld Frumherja (9.800,-) og endurnýjun ökuskírteinis.

Skráning hér á síðunni - senda umsókn í fyrirspurn.
Skráning og upplýsingar í síma 692-3039 (Björn)
   
 


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.

Skrifa athugasemd





captcha

Mynd augnabliksins

dsc05572.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf