Almennt - mánudagur 03.janúar 2011 - Björn Magnússon - Lestrar 419 - Athugasemdir (3)
Eftir gott jólafrí er kominn tími til að hefjast handa að nýju. Næsta Ö1 námskeið hefst mánudaginn 10 janúar kl 18.00 og
Ö2 hefst viku síðar, mánudaginn 17. jan. Þær breytingar hafa verið gerðar á skipulagi námskeiðanna að nú líður
aðeins ein vika á milli námskeiðslota í stað tveggja áður. Við vonum að aukin tíðni námskeiða komi sér vel fyrir
nemendur okkar og ökukennara á svæðinu.

