Almennt - miðvikudagur 07.september 2011 - Björn Magnússon - Lestrar 79 - Athugasemdir (0)
Fimmtudaginn 6. október hefst næsta námskeið til aukinna ökuréttinda hjá Ökuskólanum á Akureyri.
Boðið er uppá kennslu til allra réttindaflokka, hvort sem allir flokkar
eru teknir í einu eða einstök réttindi. Kennarar skólans hafa mikla reynslu í akstri og meðhöndlun stórra bíla og ýmist eru
eða hafa verið starfandi atvinnubílstjórar - enda er almennt talið að til að geta miðlað til annara þurfi viðkomandi kennari að hafa reynslu
sjálfur. Skólinn býður upp á mjög góða aðstöðu til kennslu og fyrsta flokks ökutæki í alla réttindaflokka -
og að sjálfssögðu besta verðið:=) Upplýsingar og skráning: Kristinn s. 892 9166 og Björn s. 692 3039
